I would if I could... but I don't want to!
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 219 dögum
verður trítillinn minn eins árs!
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 24 dögum
verður títlan mín sex ára!
Tenglar
31.12.2008 11:02:14 / Rassálfurinn

Hafið þið pælt í þessu?

Það er kannski ekki skrítið að í rafmagnsleysi hugsi margir eitt augnablik "æ ég nota þá bara tímann til að strauja"  eða "við fáum okkur þá bara kaffi" áður en þeir átta sig á hversu kjánalegt það er.  Við notum rafmagn nánast til alls.  Mig langar ekki einu sinni að ímynda mér lífið án þess.

Það eru ca 20 mínútur síðan ég fór á fætur (jább, ég á tvö yndisleg börn sem sofa út, þau eru efni í annað blogg) og nú þegar er búið að kveikja á 8 rafmagnstækjum. 

1: Hraðsuðuketilinn settur í gang svo litla matargatið fái morgunsopann sem fyrst.
2: Uppþvottavélin sett af stað.
3: Þvottavélin sett af stað.
4: Brauðristin nýtt til hins ítrasta, svöng skottan bíður ekki frekar en matargatið.
5-7: Kveikt á sjónvarpinu, Xboxinu og græjunum svo heimasætan geti horft á Öskutusku.
8: Kveikt á tölvunni, um að gera að nota allan rólegan tíma til að lesa eitthvað gagnlegt og undirbúa sig fyrir skólann (hmm já og blogga).

Öll þessi rafmagnstæki notuð á fyrstu 20 mínútum dagsins.  Já og rafmagn notað meira reyndar, ég taldi ekki með aðventuljósið og jólaseríurnar sjö ;)

Pant ekki lifa án þess...!


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 03:02:46 / Rassálfurinn

Pirruð.is

Má sparka í menn ef þeir eru algjörir asnar? 

En ef þeir láta eins og þeir séu daufdumbir asnar? 

Plís?

Má ég?

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 21:15:06 / Rassálfurinn

Þetta er fáránlegt...

Jahá.  Litli frændi minn, 14 ára gamall er með stærri fætur en ég og notar þar af leiðandi stærri skó en ég.   Ég er orðin vön því,  enda búið að vera svona síðan hann var átta ára.  Jább þú last rétt, ÁTTA ára! 8|



Nú er svo komið að skórinn minn passar léttilega ofan í skóinn hans.  Hversu sorglegt er það?  :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 00:18:01 / Rassálfurinn

Æi eru þeir að klúðra þessu?

Mér fannst næturvaktin algjör snilld, hver og einn einasti þáttur fékk mig til að hlæja.  Það sama hef ég getað sagt um dagvaktina þangað til í kvöld.  Jújú, það voru alveg punktar þarna inn á milli sem ég brosti yfir.  En ef Gugga birtist ekki í næsta þætti þá nenni ég ekki meir!



Öll næturvaktin gekk útá það að Georg var við stjórnvölinn og hverslags fífl hann er sem yfirmaður.  Það er búið að vera fyndið.  Núna var fyndið að sjá annan yfirmann og hvernig Georg er ekki að gera sig sem almennur starfsmaður. Að sjá Daníel njóta þess í botn að gera lítið úr rauðhausnum.  Ef þessi sería á að ganga útá það sama og sú fyrri þá er ég farin í fílu. Mega fílu.  Alveg satt!

Takk fyrir pent!

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 02:29:21 / Rassálfurinn

Varúð, jólett! Gunna ekki lesa þetta...

Spurning:   Finnst mér ótrúlega stutt síðan ég átti Leó Björn?  Uhhh já! 
Eru þessar 10 vikur búnar að vera svakalega fljótar að líða? Uhhh já!

Í dag (19. október) eru 66 dagar síðan hann fæddist,  OG það eru 66 dagar til jóla!

Ó mæ god nú fer ég að fríka út!  Siggi paranoia vill ekki að litli gullmolinn fari inn í verslunarmiðstöð strax svo ég þarf að versla um helgar þegar ég get fengið pössun.  Sem áður harðneita ég að versla jólagjafir í ösinni í desember svo það eru ekkert svakalega margar helgar til stefnu. 

(pssssst...ég veit að þú ert að lesa þarna forvitnisgrísinn þinn, en ekki segja að ég hafi ekki varað þig við) :lol:

Sex helgar fram að desember,  þar af dettur ein helgin út af því að ég ætla að fara á ball með Páli Óskari á Nösu!  Júhú! :haha:   (Okei ballið er ekki heila helgi,  en laugardagurinn fer í undirbúning og sunnudagurinn sennilega í smá þreytu) ;)

Svo tækilega séð hef ég 5 helgar til að versla jólagjafirnar.  Það þýðir ca 6 gjafir hverja lausa helgi fram að desember, og ég sem veit EKKERT hvað ég á að kaupa.  Jæks! 8|

Sorrý Gunna mín, ég ætlaði ekki að koma svona snemma með jólaböggbloggið.  Var bara að reka augun í niðurtalninguna hérna til hliðar :haha:   En þú ættir nú eiginlega bara að koma með mér í jólagjafasjopperí á næstunni.  Þér veitir ekki af að klára þetta,  ekki ferð þú að versla í desember.  Siggi missir legvatnið ef þú ferð með nýfædda litla frændann í Smáralindina :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 04:19:59 / Rassálfurinn

Glöggt er gestsaugað...

...eins og sjá má er ég búin að eyða öllum gömlum færslum af blogginu mínu. Var að spá í að loka þessu bara alveg og hætta að blogga.  Ég er orðin eitthvað svo andlaus í blogg málum þessa dagana.  Kannski ekki skrítið þar sem harla fátt frásagnarvert gerist þegar maður er einn heima allan daginn með ómálga barni.

Ekki misskilja mig,  ég nýt þess í botn að vera heima með litla ljóninu mínu og knúsast með hann allan liðlangan daginn.  Ég held bara að ykkur þætti ekki jafn gaman að lesa um það ;)  Brjóstagjöf og bleiuskipti á ca þriggja tíma fresti...

Ég mun þó örugglega henda inn einni færslu af og til þegar eitthvað merkilegt á sér stað.  Ef ég nenni...

Á amk eftir að koma með eins og eitt gott jólablogg til að nördast í tröllanum henni Gunnu :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan